Með því að gefa gjafabréfið TAUPOKI MEÐ TILGANG tekur þú þátt í valdeflingu og umhverfisvernd á Íslandi. Stuðningur þinn skiptir máli!
Á Íslandi starfar Hjálparstarf kirkjunnar með konum úr hópi innflytjenda og flóttafólks sem eiga á hættu að einangrast félagslega. Í saumaverkefninu „Taupokar með tilgang“ fá þær tækifæri til að hitta aðrar konur, læra að sauma með því að búa til fjölnota innkaupapoka og borða saman hádegismat. Til pokagerðarinnar nota konurnar efni sem Hjálparstarfið hefur fengið að gjöf og hefur þegar verið notað. Með saumaskap sínum stuðla konurnar þannig að endurnýtingu efnis og umhverfisvernd um leið og þær njóta samverunnar. Verkefnið er unnið í samstarfi við Hjálpræðisherinn á Íslandi.