Með framlagi þínu – hvort sem þú ert gefandi eða þiggjandi þessa gjafabréfs – tryggir þú betri uppskeru.
Í Eþíópíu starfar Hjálparstarf kirkjunnar með fjölskyldum sem búa við mjög slæm skilyrði á þurrkasvæðum að því að tryggja fæðuöryggi þeirra. Bændurnir rækta maís, hirsi, hveiti og bygg en hafa ekki efni á skilvirkum verkfærum. Með plógi sem ristir djúpt er hægt að auka framleiðsluna og fæðuöryggið um leið. Smám saman verður lífsafkoman betri.