Með því að gefa gjafabréfið MATJURTAGARÐUR tryggir þú ekki aðeins næringarríka fæðu barna sem búa við sára fátækt í Úganda heldur veitir þeim líka tækifæri til betra lífs. Stuðningur þinn skiptir máli!
Með framlagi þínu – hvort sem þú ert gefandi eða þiggjandi þessa gjafabréfs – tryggir þú ekki aðeins næringarríka fæðu heldur líka tækifæri til betra lífs.
Í sveitinni í Úganda njóta börn sem hafa misst foreldra úr alnæmi stuðnings svo þau fái lifað mannsæmandi lífi. Eldri börnin fá fræðslu, verkfæri, fræ og útsæði til að rækta grænmeti og við það verður fæðan fjölbreyttari og næringarríkari. Þegar ræktunin gengur vel er meira að segja hægt að selja hluta af afurðunum. Þegar heilsufar barnanna batnar og með tekjum af sölu grænmetis aukast líkur á að börnin geti sótt skóla og fengið menntun. Smám saman verður lífsafkoman betri.