Með framlagi þínu – hvort sem þú ert gefandi eða þiggjandi þessa gjafabréfs – tryggir þú ekki aðeins aukið hreinlæti og betri heilsu heldur líka tækifæri til betra lífs.
Í sveitinni í Úganda njóta börn sem hafa misst foreldra úr alnæmi stuðnings svo þau fái lifað mannsæmandi lífi. Með aðgengi að kamri og upplýsingum um mikilvægi handþvottar og hreinlætis verða börnin síður veik og geta sótt skólann. Kamar nýtist stúlkum sérlega vel. Þær geta ekki pissað undir vegg eins og piltarnir, það þykir skammarlegt. Þær bíða því oft fram í myrkur og það getur valdið meltingarvandamálum og öðrum erfiðleikum. Kamar leysir því meira en augljósan vanda.