Jólin eru sérstakur tími fyrir okkur öll. Því leggur Hjálparstarf kirkjunnar ríka áherslu á að aðstoða fjölskyldufólk á Íslandi sem býr við kröpp kjör á aðventunni svo það geti gert sér dagamun yfir hátíðirnar.
Fyrir mörgum okkar er það heilög gleðistund þegar fjölskyldan safnast saman við jólatréð á aðfangadag til að opna gjafirnar. Því miður á þetta ekki við um alla því foreldrar margra barna á Íslandi geta ekki keypt fallega jólagjöf fyrir börnin sín.
Með þínu framlagi gerir þú Hjálparstarfi kirkjunnar kleift að styðja fjölskyldu sem býr við kröpp kjör til að hafa óska jólagjöfina undir trénu þessi jólin.
Með framlagi þínu – hvort sem þú ert gefandi eða þiggjandi þessa gjafabréfs – gleður þú barn á jólum