Með framlagi þínu – hvort sem þú ert gefandi eða þiggjandi þessa gjafabréfs – styður þú ungmenni á Íslandi til náms.
Hjálparstarf kirkjunnar styður ungmenni sem búa við efnislegan skort svo þau geti stundað nám á framhaldsskólastigi.
Stuðningurinn gerir þeim kleift að ljúka námi til stúdentsprófs, sveinsprófs eða annars sem veitir þeim starfsréttindi eða opnar þeim leið til háskólanáms. Unga fólkið fær aðstoð við að kaupa námsgögn, greiða skólagjöld eða annað sem gæti orðið efnaminni nemendum hindrun í að ljúka námi.