Með framlagi þínu – hvort sem þú ert gefandi eða þiggjandi þessa gjafabréfs – tryggir þú betri uppskeru.
Í Eþíópíu starfar Hjálparstarf kirkjunnar með fjölskyldum sem búa við mjög slæm skilyrði á þurrkasvæðum að því að tryggja fæðuöryggi þeirra. Bændurnir rækta maís, hirsi, hveiti, bygg, vatnsmelónur, tómata og safaríka lauktegund. Með þurrkþolnum fræjum er hægt að auka framleiðsluna og fæðuöryggið um leið. Smám saman verður lífsafkoman betri.