Með framlagi þínu – hvort sem þú ert gefandi eða þiggjandi þessa gjafabréfs – tryggir þú betri uppskeru.
Í Eþíópíu starfar Hjálparstarf kirkjunnar með fjölskyldum sem búa við mjög slæm skilyrði á þurrkasvæðum að því að tryggja fæðuöryggi þeirra. Bændurnir rækta maís, hirsi, hveiti og bygg en hafa ekki efni á skilvirkum verkfærum. Með plógi sem ristir djúpt er hægt að auka framleiðsluna og fæðuöryggið um leið. Smám saman verður lífsafkoman betri.
Hjálp til sjálfshjálpar á þurrkasvæðum í Eþíópíu.
Stærsta verkefni Hjálparstarfs kirkjunnar í þróunarsamvinnu er með sárafátæku fólki sem býr á miklum þurrkasvæðum í Sómalífylki í austanverðri Eþíópíu. Betur stæðir bændur eiga kameldýr, nautgripi, kindur og geitur og þar sem skilyrði eru til rækta bændurnir maís, hirsi, hveiti, grænmeti og ávexti. Vatnsskortur í héraðinu veldur hins vegar sárri fátækt meðal sjálfsþurftarbænda þar. Þegar lítið sem ekkert rignir á hefðbundnum regntíma verður uppskeran rýr og fátæktin sífellt sárari. Þegar loksins rignir er jarðvegurinn orðinn grjótharður og regnvatnið nær ekki að næra hann en rífur með krafti sínum ræktarland í sundur.
Hjálparstarf kirkjunnar starfar með fjölskyldum sem búa við mjög slæm skilyrði í héraðinu að því að tryggja fæðuöryggi þeirra. Meginmarkmið verkefnisins eru að bæta aðgengi að drykkjarhæfu vatni, að fólkið geti aukið fæðuöryggi sitt með umhverfisvernd og bættum aðferðum í landbúnaði og að styrkja stöðu kvenna, samfélaginu öllu til farsældar.
Bændurnir fá verkfæri og þurrkþolin fræ til ræktunar ásamt fræðslu um skilvirkar aðferðir í rækun. Dýraliðar fá þjálfun í að meðhöndla dýrasjúkdóma og bólusetja búfé með bóluefni sem Hjálparstarf kirkjunnar útvegar. Í framhaldi af fræðslu skipuleggur fólkið landgræðsluhópa sem planta trjágræðlingum og reisa stíflur og veggi í árfarvegum til að hefta jarðrof.
Verðin á gjafabréfunum hér á síðunni eru táknræn en andvirði þeirra rennur til verkefnisins í heild, þar með talið til þess að tryggja betri uppskeru.